Úlfaldinn 2011

Þetta árið verður enginn Úlfaldi.  Eftir miklar pælingar var það niðurstaðan að taka pásu og hlaða batteríin og leggjast í endurskipulagningu á hátíðinni, og koma til baka seinna meir með meiri krafti og fjöri en nokkurn tíman.  Hvenær það verður getum við engu lofað um, en það mun verða og stefnum við ótrauð á næsta ár.  Hvort það gangi verðu tíminn að leiða í ljós.

Sjáumst næst.
 

Fregnir af andláti Úlfaldans stórlega ýktar

Já, það er ólseigt í úlfaldakvikindinu.

Úlfaldinn er allt annað en dauður, og nú fer að líða að þvíað hann ranki við sér af vetrardvalanum sem hið alíslenska úlfaldikyn hefur alið með sér til að höndla þannan íslenska maívetur. Væntanleg dagsetning er 9. júlí, en verður það alltsaman fastneglt um miðjan mánuðinn í tilkynningu sem send verður út um miðjan mánuðinn. Þið skuluð því fylgjast með..

 

Hljómsveitarlisti 2010

Jæja kæru vinir! Nú er hljómsveitarlistinn klár og búið að raða á dagana.

Dagskráin er sem hér segir:

Föstudagur hefst kl. 19:00

Tom Hannay (UK)

Árstíðir

Kiriyama family

Nögl

Thingtak

Endless dark

 

Laugardagur hefst kl 18:00

Baggabandið

Of monsters and men

Some shape to enter (DK)

Bróðir Svartúlfs

Nevolution

Cliff Clavin

Jan Mayen

Agent Fresco

 

Þetta er endanlegur listi gjörið svo vel!

Við minnum á að aðgangur er ókeypis á tónleikana og ekkert aldurstakmark.

Einnig minnum við á okkar frábæra tjaldsvæði sem er í göngufæri við tónleikahlöðuna og kostar litlar 1000 kr. á manninn fyrir helgina.

"Þetta er gjöf en ekki gjald" eins og maðurinn sagði.

Hlökkum til að sjá ykkur hress og kát!

 

Múrinn fellur

Framkvæmdir eru í fullum gangi og nú síðast var rifinn niður eitt stykki milliveggur svo fleiri komist að í hlöðunni en áður. Sviðið hefur verið rifið til þess eins að flytja það og setja upp aftur á öðrum og betri stað. Video af stórviðburðinum þegar múrinn féll er væntalegt á síðuna á morgun. Einnig var hlaðan sett í tónleikabúninginn með segli ársins sem vegfarendur í Mývatnssveit geta séð.

Mikið hefur verið spurt út í tjaldstæðamál og standa málin þannig að tjaldstæði verður um 500 m frá tónleikahlöðunni og mun kosta litlar 1000 kr per mann alla helgina. Tjaldstæði þetta er sett upp fyrir hátíðina og verður útbúið með helstu nútímaþægindum eins og rennandi vatni og kömrum. Reglur tjaldstæðisins verða birtar á síðunni þegar búið er að semja þær.

Dagskrá fyrir hvort kvöld er einnig komin á hreint og mun hún birtast hér á síðunni í vikunni.

 

 

 

Allt á fullu!

Framkvæmdagleði okkar Úlfalda á sér öngvin takmörk. Nú á dögunum tókum við okkur til og rústuðum hænsnakofa sem er sambygður tónleikahlöðunni og gerðum prýðisgott hljómsveitarherbergi. Í staðinn fáum við meira pláss í hlöðunni sjálfri sem er gott fyrir alla. Hátíðin er að taka á sig lokamynd og undirbúningur í hámarki. Við viljum biðjast afsökunar á því að vera léleg að smella inn fréttum en á því verður laglega breyting núna. Hljómsveitarlistinn er nú tilbúinn. Það var ánægjulegt að sjá hve margar frábærar  hljómsveitir eru til í að leggja sitt af mörkum. Því miður er ekki pláss fyrir fleiri hljómsveitir í ár þó við glöð vildum hafa fleiri.

Takk í bili: Úlfaldar

 

Hljómsveitir

Fréttir

myflug

spthin

dimmuborgir

samkaup-strax

landsvirkjun

skutustadahreppur

kaffiborgir