2009

Árstíðir

arstidirÁrstíðir er nokkuð ungt band, en þeir byrjuðu að spila saman í júlí 2008. Tónlistin sem þeir spila svipar til Crosby, Stills and Nash. Þeir koma við á Úlfaldanum á túr sínum um landið, "Rás 2 plokkar hringinn", sem þeir eru á ásamt Svavari Knúti og Helga Val.

Hljómsveitina skipa:
Daníel - gítar og söngur
Gunnar - gítar og söngur
Hallgrímur - selló og söngur
Jón - píanó og söngur
Ragnar - baritón gítar og söngur

Smellið á myndina til að fara á Myspace kappanna.

 

Helgi Valur

helgi_valurHelgi Valur vakti fyrst athygli landsmanna þegar hann var í öðru sæti í Söngkeppni Framhaldskólanna árið 2000, þar sem hann söng útgáfu Jeff Buckley á Leonard Cohen laginu "Hallelujha" Árið 2004 vann hann svo trúbadorakeppni Rásar 2. Ári síðar kom svo út fyrsta plata Helga, "Demise of Faith".
Helgi er a plokka hringinn með Rás 2 og kemur við á Úlfaldanum að því tilefni.

Smelltu myndina til að fara á Myspace

 

Svavar Knútur

svavarSvavar Knútur trúbador hefur undanfarin misseri staðið í ströngu við að brúa bilin milli söngvaskálda frá mismunandi þjóðlöndum og hefur verið leiðandi í Alþjóðasamsæri Trúbadora. Hann hefur einnig gefið út tvær plötur með hljómsveitinni Hraun og í vor bættist við hans fyrsta sólóskífa: Kvöldvaka. Svavar er hugljúfur og angurvær trúbador sem sameinar tilfinningahita og leitandi gleði í grípandi lögum og sönnum textum. 

Smellið á myndina til að fara á Myspace.
 

Lights on the Highway

lightsonthehighwayMeðlimir Lights on the Highway hófu að spila saman árið 2004 og gáfu út sinn fyrsta geisladisk ári seinna. Á þeirri plötu voru til dæmis lögin Jameson´s State og Long Summer Dining sem fengu mjög góða spilun í útvarpi. Núna er bandið á fullu að leggja vinnu í nýja plötu þar sem verður meðal annars lagið Silver Lining sem hefur þegar fengið góða spilun. 

 

Meðlimir Lighs on the Highway eru: 
Kristófer - söngur
Agnar - gítar
Karl - bassi
Þórhallur - trommur

Smelltu á myndina að ofan til að fara á Myspace- síðu þeirra.

 

Who Knew

Who Knew koma til með að senda tónleikagesti út í föstudagsnóttina.
Kíkið á Myspace hjá þeim með því að klikka á myndina af þeim, til að fá tóndæmi.
whoknewWho Knew koma til með að senda tónleikagesti út í föstudagsnóttina. Kíkið á Myspace hjá þeim með því að klikka á myndina af þeim, til að fá tóndæmi.
 

Baggabandið

baggabandBaggabandið er án efa leynivopn hátíðarinnar og er það eina bandið þetta árið sem nær eingöngu er skipað Mývetningum. Þetta eru ungir og efnilegir strákar úr Mývatnssveitinni. Þeir munu sjá um að koma öllu af stað á laugardagskvöldinu og er engin ástæða til annars en að ætla að þeir geri það með stakri prýði. 
Bandið býr ekki yfir þeim munaði að hafa myspace þannig að verður það spenna ársins að heyra í þeim hljóðið, laugardagskvöldið 11. júlí.
 

Skorpulifur

skoprulifurSkorpulifur er skipuð frændunum Hannesi Þór Baldurssyni og Ragnari Davíð Baldvinssyni. Fyrsta plata Skorpulifur er kominn út og heitir platan "Heimabrugg" og er fáanleg í eftirfarandi búðum: 12 Tónar, Skífan, Mál og Menning, Eymundsson, Hljómalind og á www.tonlist.is 

Smellið á myndina til að fara á Myspace.
 

Bróðir Svartúlfs

brodirsvartulfsBróðir Svartúlfs er afkvæmi fimm ólíkra hugmynda. Samstarfið hófst seinasta september og kom öllum meðlimunum strax á óvart hve samstilltir þeir voru, sérstaklega þegar litið var til forsögu hvers og eins þeirra í tónlist. Margur hefur reynt að koma bandinu fyrir innan ákveðins ramma eða stefnu, en ásættanleg niðurstaða í þeim málum hefur enn ekki fengist. Meðlimir kæra sig yfirleitt köllótta um þetta mál. 

Hljómsveitina skipa:
Arnar Freyr Frostason - rapp/söngur
Andri Þorleifsson - trommur
Helgi Sæmundur Guðmundsson - synth/bakrödd
Jón Atli Magnússon- bassi 
Sigfús Arnar Benediktsson- rafmagnsgítar

Smellið á myndina til að fara á Myspace.
 

Thingtak

Hljómsveitin Thingtak spilar kröftugt prógressíft ævintýrarokk. Hljómsveitin var stofnuð haustið 2005 og bar þá nafnið Alþingi. Eftir um 5 mánaða samstarf fengu liðsmenn heimboð í Alþingishúsið við Austurvöll þar sem löglærðir menn kváðust vera á móti nafngiftinni. Nafninu var þá breytt í Thingtak sem þýðir vopnatak. Platan Thingtak kom út 8. apríl 2006 og var hún gefin út af liðsmönnum hljómsveitarinnar. Hún var tekinn upp í studio Hljóðrita í Hafnarfiri á 17 tímum og inniheldur 12 lög. Þema plötunar er saga Íslands frá landnámi til siðaskipta.

Í hljómsveitinni eru:
Stefán - söngur og bassi
Hrafnkell - gítar
Sverrir - trommur

Kíkið á Myspace með því að klikka á myndina


 

Vicky

vickyRokksveitin Vicky mun mæta aftur á Úlfaldann í ár. Sveitin sló svo sannarlega í gegn á síðasta Úlfalda, jafnt á tónleikunum sem og eftir þá, þar sem hamingjan var í fyrirrúmi. Síðan síðast hafa þau staðið í ströngu og má þá helst nefna útgáfu plötunnar Pull Hard. Vicky átti lagið Blizzard á toppi X-Dominos listanns á X-inu og komst það lag einnig á top 10 lista yfir lög ársins á útvarpssöðinni.

Í hljómsveitinni eru:

Ástrós - bassi
Eygló - söngur
Eyrún - gítar
Lotta - gítar
Orri - trommur

Kíkið á Myspace með því að klikka á myndina

 

Agent Fresco

agent_frescoHljómsveitin Agent Fresco hefur farið mikinn frá upphafi. Þeir byrjuðu á að vinna Músíktilraunir og seinna unnu þeir undankeppni Global Battle of the Bands og kepptu úti fyrir Ísland hönd. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu, "Lightbulb Universe", í vetur og hlutu lög þeirra "Eyes of a Cloud Catcher" og "Silhouette Palette" gríðarmikla spilun á öldum ljósvakans. 

Í hljómsveitinni eru:
Arnór - söngur
Borgþór - bassi
Hrafnkell - gítar
Þórarinn - gítar og píanó

Kíkið á Myspace.
 

Múgsefjun

mugsefjunMúgsefjun á uppruna sinn að rekja til ársins 2004 þegar æskuvinirnir Hjalti og Björn fóru að spila saman. Með árunum bættust svo við sveitina harmonikkuleikari, trommari og bassaleikari og er sveitin í þeirri mynd nú í dag, og er ekki hvaða band sem er í dag sem státar af því að vera með harmonikkuleikara innanborðs. Hljómsveitin gaf svo út sína fyrstu plötu, "Skiptar Skoðanir", nú í vor og fékk hún t.a.m. 4 stjörnur af 5 í umfjöllun Fréttablaðsins. 

Hljómsveitina skipa:
Hjalti - söngur
Sveinn - harmonikka, hljómborð og raddir
Brynjar - bassi
Eiríkur - trommur

Kíkið á Myspace með því að klikka á myndina
 

myflug

spthin

dimmuborgir

samkaup-strax

landsvirkjun

skutustadahreppur

kaffiborgir