Baggabandið
Baggabandið er án efa leynivopn hátíðarinnar og er það eina bandið þetta árið sem nær eingöngu er skipað Mývetningum. Þetta eru ungir og efnilegir strákar úr Mývatnssveitinni. Þeir munu sjá um að koma öllu af stað á laugardagskvöldinu og er engin ástæða til annars en að ætla að þeir geri það með stakri prýði. Bandið býr ekki yfir þeim munaði að hafa myspace þannig að verður það spenna ársins að heyra í þeim hljóðið, laugardagskvöldið 11. júlí.





