Bróðir Svartúlfs
Bróðir svartúlfs, sigurvegarar Músíktilrauna 2009 koma fram í annað skiptið á Úlfaldanum. Bróðir Svartúlfs er afkvæmi fimm ólíkra hugmynda. forsaga meðlimana í tónlist frekar ólík en þrátt fyrir það blandast þeir ótrúlega vel og ú verður hörku band. Margur hefur reynt að koma bandinu fyrir innan ákveðins ramma eða stefnu, en ásættanleg niðurstaða í þeim málum hefur enn ekki fengist. Meðlimir kæra sig yfirleitt köllótta um þetta mál og fljóta því stefnulaust áfram, og hefur hömluleysið enn sem komið er einungis skilað sér í formi litríkari tónlistarsköpunar.






