Cliff Clavin
Cliff Clavin er fjögurra manna hljómsveit úr Garðabænum stofnuð snemma árs 2006. Hljómsveitin er skipuð þeim Bjarna Þór (Söngur, Gítar), Arnari Rósenkranz (trommur), Toto (Bassi) og Fannari (Gítar).
Í lok nóvember 2007 unnu þeir undankeppni Global Battle of the bands sem kom þeim til London í úrslit keppninnar þar sem þeir höfnuðu í 6. sæti.
Síðan þá hefur hljómsveitin verið jafnt og þétt að ryðja sér til rúms í íslensku tónlistarlífi en þó verið sérstaklega áberandi síðastliðna mánuði. En lögin Midnight Getaways og This Is Where We Kill More Than Time hafa bæði vakið mikla athygli á öldum ljósvakans.
Cliff Clavin hefur fengið á sig gott orðspor fyrir að vera frábært tónleikaband en hljómsveitin var m.a valin ein af 6 hápunktum Iceland Airwaves 2009 af tónlistarvefsíðunni Thrash Hits og breska tímaritið Kerrang! gaf þeim KKKK fyrir frammistöðu sína á þeirri sömu hátíð.






