Endless dark

Tónlistin sem þeir spila er dramatísk blanda af kraftmiklum, þungum gíturum, retro-synth hljómborðum og fullkomin blanda af hreinum söng og öskri. Skuggalegir taktar og trommufillerar gera tónlistinni kleift að breytast stanslaust og byggja upp spenning, en á sama tíma missir hún aldrei sinn þunga "metal" uppruna. Síðustu afrek þeirra voru að koma fram fyrir Íslands hönd í alþjóðlegu hljómsveitakeppninni Global Battle of the Bands. Stóðu þeir sig með stakri prýði, tóku annað sætið með sér heim en fengu þó enga fálkaorðu.





