Jan Mayen

Jan Mayen kom fyrst fram á sjónarsviðið árið 2003 og gáfu út sína fyrstu plötu, Home of the Free Indeed, ári seinna. Þeir voru tilnefndir til þriggja verðlauna á Íslensku Tónlistarverðlaununum 2005 fyrir plötuna. Tónlist þeirra hefur verið líst sem blöndu af háværu rokki og poppi og verið líkt við Sonic Youth, The Ramones og The Strokes. Nú er komin út önnur plata þeirra sem ber nefnið So Much Better Then Your Normal Life. Jan Mayen komu fram á fyrstu Úlfaldahátíðinni árið 2008 og endurnýja því kynni sín við gesti okkar þetta sumarið.





