Kiriyama Family
Hljómsveitina skipa þeir Bassi, Gummi, Jói, Kalli og Viddi og var stofnað í júní 2008 af þeim Jóa, Kalla og Vidda. Í byrjun voru lög samin og send á milli Íslands og Svíþjóðar þar sem Jói var staddur í Svíþjóð í hljóðtækninámi en núna fyrir nokkrum mánuðum bættust þeir Bassi og Gummi í bandið. Núna þegar allir hafa verið staddir á Íslandi hefur sumarið farið í það að semja, fullklára lög og taka upp. Þeir spila electro pop en þar sem þeir eru fremur nýtt band hefur enn ekkert heyrst frá þeim fram að þessu og þess vegna tilvalið sjá þá á Úlfaldanum, þreyta frumraun sína á sviði.






