Of Monsters and Men
Of Monsters and Men, sigurvegarar músiktilrauna í 2010 spila í fyrsta skiptið á Úlfaldanum í ár og bjóðum við þau hjartanlega velkomin. Of Monsters and Men samanstendur af tveimur keflvíkingum og einum garðbæingi. Of Monsters and Men varð til þegar Nanna Bryndís fór að fá vini sína til þess að spila undir hjá sér. Hún hafði komið fram undir nafninu Songbird frá 2007 og var þetta þá sólóverkefni. Eftir að Brynjar og Raggi fóru að spila með henni fór þetta að þróast meira í hljómsveit og þá fannst öllum rétt að skipta um nafn og varð Of Monsters and Men fyrir valinu. Of Monsters and Men spilar draumkennda folk tónlist með poppuðu yfirbragði."
Var búið að minnast á að bandið heitir Of monsters and men?






