Some Shape to Enter (DK)
Some Shape to Enter er framsækin þungarokkshljómsveit frá
Álaborg í Danmörku. Hljómsveitin sem var stofnuð árið 2007 samanstendur af
þremur hljómsveitarmeðlimum og er þekkt fyrir óhefðbundinn stíl og kraftmikla
sviðsframkomu. Þeir hafa haldið tónleika í Albaníu (á vegum danska sendiráðsins
þar í landi) og auk þess haldið tónleika víða í Danmörku.
Tónleikarnir á úlfalanum verða fyrstu Tónleikar sveitarinnar á Íslandi.






