Úlfaldi úr Mýflugu
Tónlistarveislan Úlfaldi úr Mýflugu mun verða haldin helgina 10.-11. júlí í Mývatnssveit. Hátíðin var fyrst haldin í júlí 2008 og heppnaðist vonum framar. Gestir voru um 450 manns og þýddi því lítið annað en að endurtaka leikinn að ári og er það stefnan að gera hátíðina að árlegum viðburði í Mývatnssveit.
Meira má sjá um aðdraganda Úlfaldans í "Um Úlfaldann" hér fyrir neðan. Í ár er planið að stækka við hátíðina og verða um 10 til 12 bönd sem spila. Hér fyrir neðan er svo hægt að nálgast upplýsingar um tónlistarmenninina sem muna heiðra okkur með nærveru sinni í sumar. Einnig verður síðar meir hægt að sjá myndir og video frá Úlfalda síðasta árs. Hér munu svo koma helstu fréttir af Úlfaldanum og hvetjum við alla til að fylgjast náið með.
Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda okkur mail á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.





