Tónleikar á Sódóma
Jæja, þá er þetta allt að fara að gerast. 
Á fimmtudaginn næsta (27.05) verður blásið til upphitunar á Sódóma í Reykjavík. Hefjast þar tónleikar á slaginu 22:00 og standa fram eftir kvöldi.
Fjórar hljómsveitir verða að spila, Cliff Clavin sem allir ættu að þekkja, Vicky sem allir þekkja, Skálmöld, flunku nýtt súpergrúppuofurmetal band sem enginn má missa af á sínum fyrstu tónleikum, og síaðsst en ekki síst, Thingtak, sem mætir með nýtt lag í vasanum og allt.
Já , það á enginn eftir að sjá eftir 1000 kallinum í þennan eðal, en ágóði að miðasölu rennur í framkvæmdasjóð hátíðarinnar, svo að allt geti þetta nú orðið að veruleika.
Vonumst til að sjá sem flesta,
Góðar stundir.





