Tónleikar á Sódóma

Jæja, þá er þetta allt að fara að gerast.                                                     

Á fimmtudaginn næsta (27.05) verður blásið til upphitunar á Sódóma í Reykjavík.  Hefjast þar tónleikar á slaginu 22:00 og standa fram eftir kvöldi.  

Fjórar hljómsveitir verða að spila, Cliff Clavin sem allir ættu að þekkja, Vicky sem allir þekkja, Skálmöld, flunku nýtt súpergrúppuofurmetal band sem enginn má missa af á sínum fyrstu tónleikum, og síaðsst en ekki síst, Thingtak, sem mætir með nýtt lag í vasanum og allt.

Já , það á enginn eftir að sjá eftir 1000 kallinum í þennan eðal, en ágóði að miðasölu rennur í framkvæmdasjóð hátíðarinnar, svo að allt geti þetta nú orðið að veruleika.

Vonumst til að sjá sem flesta,

Góðar stundir.

 

myflug

spthin

dimmuborgir

samkaup-strax

landsvirkjun

skutustadahreppur

kaffiborgir