
Búið er að bóka hljómsveitina Who Knew á Úlfaldann og koma þeir til með að loka föstudagskvöldinu í stað Brain Police.
Þá er loksins komin lokamynd á dagskránna og er hún svohljóðandi:
Föstudagskvöld:
Árstíðir
Helgi Valur
Svavar Knútur
Lights on the Highway
Who Knew
Laugardagskvöld:
Baggabandið
Skorpulifur
Bróðir Svartúlfs
Thingtak
Vicky
Múgsefjun
Þetta lítur allt saman stórvel út og vonandi eruð þið farin að hlakka jafn mikið til og við :-)
Góðar Stundir.
Þær slæmu fréttir voru að berast okkur að því miður geta Brain Police ekki séð sér fært að mæta til okkar í sumar. Jenni söngvari forfallaðist. Það er lítið við því hægt að gera og biðjum við þá sem biðu spenntir eftir að berja þá augum afsökunar. Við erum á fullu að reyna fylla í skarðið fyrir þá og bendum við öllum á að fylgjast grannt með hér á síðunni eftir frekari upplýsingum um það.
Það er annars helst að frétta að það er komið video og nokkrar myndir frá tónleikum síðasta árs á síðuna og mæli með því að tékka á því, og meira er á leiðinni. Einnig er gestabók í smíðum.
Þar til næst,
Góðar Stundir.
Það er okkur sannur heiður að tilkynna nýjustu viðbótin í einvala lið tónlistarmanna sem koma fram í hlöðunni margfrægu í júlí. Samningar hafa náðst við hið margrómaða Baggaband frá Vogum í Mývatnssveit og munu þeir sjá um að trekkja mannskapinn á réttan stað á laugardagskvöldinu.
Tónleikarnir hafa verið fullmannaðir og komust færri að en vildu. Búið er að setja dagskrána saman og er þá farin að koma ágætis mynd á þetta allt saman. Síðan síðast hafa tvær hljómsveitir bæst við og eru það hljómsveitirnar Agent Fresco og Múgsefjun, og er mikill fengur að fá þær til liðs við okkur. Frekar upplýsingar um böndin má sjá hér fyrir neðan.
Einnig hefur verið lagst í það að raða hljómsveitum niður á kvöldin mun það verða sem hér segir:
Á föstudagskvöldinu munu Árstíðir, Helgi Valur, Svavar Knútur, Lights on the Highway og Brain Police starta geðveikinni.
Á laugardagskvöldinu munu svo Skorpulifur, Vicky, Thingtak, Bróðir Svartúlfs, Agent Fresco og Múgsefjun gera allt vitlaust.
Nú þurfa allir að græja fríið, undirbúa útileguna, og mæta í Mývatnssveitina í júlí og læra að skemmta sér í eitt skipti fyrir öll.
Það fer að styttast í hátíðina. Allt er að smella og er dagskrá að verða fullmótuð.
Þessar hljómsveitir hafa núna tilkynnt komu sína:
Brain Police
Bróðir Svartúlfs
Skorpulifur
Svavar Knútur
Vicky
Nánari upplýsingar eru um hljómsveitirnar er í liðnum "Dagskrá" hér fyrir neðan.
Það er okkur sönn ánægja að byrja að tilkynna þær hljómsveitir sem munu spila á Úlfalda sumarsins, en það eru hljómsveitirnar/tónlistarmennirnir:
Árstíðir,
Helgi Valur,
Thingtak,
Lihgts on the Highway.
Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um dagskrána hér fyrir neðan.
Við viljum svo minna á að þetta er bara byrjunin.
Tónlistarveislan Úlfaldi úr Mýflugu mun verða haldin helgina 10.-11. júlí í Mývatnssveit. Hátíðin var fyrst haldin í júlí 2008 og heppnaðist vonum framar. Gestir voru um 450 manns og þýddi því lítið annað en að endurtaka leikinn að ári og er það stefnan að gera hátíðina að árlegum viðburði í Mývatnssveit. Meira má sjá um aðdraganda Úlfaldans í "Um Úlfaldann" hér fyrir neðan. Í ár er planið að stækka við hátíðina og verða um 10 til 12 bönd sem spila. Hér fyrir neðan er svo hægt að nálgast upplýsingar um tónlistarmenninina sem muna heiðra okkur með nærveru sinni í sumar. Einnig verður síðar meir hægt að sjá myndir og video frá Úlfalda síðasta árs. Hér munu svo koma helstu fréttir af Úlfaldanum og hvetjum við alla til að fylgjast náið með.
Nánari upplýsingar má nálgast með því að senda okkur mail á ulfaldinn@ulfaldinn.is

Árstíðir er nokkuð ungt band, en þeir byrjuðu að spila saman í júlí 2008. Tónlistin sem þeir spila svipar til Crosby, Stills and Nash. Þeir koma við á Úlfaldanum á túr sínum um landið, "Rás 2 plokkar hringinn", sem þeir eru á ásamt Svavari Knúti og Helga Val.
Hljómsveitina skipa:
Daníel - gítar og söngur
Gunnar - gítar og söngur
Hallgrímur - selló og söngur
Jón - píanó og söngur
Ragnar - baritón gítar og söngur
Smellið á myndina til að fara á Myspace kappanna.

Helgi Valur vakti fyrst athygli landsmanna þegar hann var í öðru sæti í Söngkeppni Framhaldskólanna árið 2000, þar sem hann söng útgáfu Jeff Buckley á Leonard Cohen laginu "Hallelujha" Árið 2004 vann hann svo trúbadorakeppni Rásar 2. Ári síðar kom svo út fyrsta plata Helga, "Demise of Faith".
Helgi er a plokka hringinn með Rás 2 og kemur við á Úlfaldanum að því tilefni.
Smelltu myndina til að fara á Myspace.

Svavar Knútur trúbador hefur undanfarin misseri staðið í ströngu við að brúa bilin milli söngvaskálda frá mismunandi þjóðlöndum og hefur verið leiðandi í Alþjóðasamsæri Trúbadora. Hann hefur einnig gefið út tvær plötur með hljómsveitinni Hraun og í vor bættist við hans fyrsta sólóskífa: Kvöldvaka. Svavar er hugljúfur og angurvær trúbador sem sameinar tilfinningahita og leitandi gleði í grípandi lögum og sönnum textum.
Smellið á myndina til að fara á Myspace.

Meðlimir Lights on the Highway hófu að spila saman árið 2004 og gáfu út sinn fyrsta geisladisk ári seinna. Á þeirri plötu voru til dæmis lögin Jameson´s State og Long Summer Dining sem fengu mjög góða spilun í útvarpi. Núna er bandið á fullu að leggja vinnu í nýja plötu þar sem verður meðal annars lagið Silver Lining sem hefur þegar fengið góða spilun.
Meðlimir Lighs on the Highway eru:
Kristófer - söngur
Agnar - gítar
Karl - bassi
Þórhallur - trommur
Smelltu á myndina að ofan til að fara á Myspace- síðu þeirra.
Who Knew koma til með að senda tónleikagesti út í föstudagsnóttina.
Kíkið á Myspace hjá þeim með því að klikka á myndina af þeim, til að fá tóndæmi.

Baggabandið er án efa leynivopn hátíðarinnar og er það eina bandið þetta árið sem nær eingöngu er skipað Mývetningum. Þetta eru ungir og efnilegir strákar úr Mývatnssveitinni. Þeir munu sjá um að koma öllu af stað á laugardagskvöldinu og er engin ástæða til annars en að ætla að þeir geri það með stakri prýði.
Bandið býr ekki yfir þeim munaði að hafa myspace þannig að verður það spenna ársins að heyra í þeim hljóðið, laugardagskvöldið 11. júlí.

Skorpulifur er skipuð frændunum Hannesi Þór Baldurssyni og Ragnari Davíð Baldvinssyni.
Fyrsta plata Skorpulifur er kominn út og heitir platan "Heimabrugg" og er fáanleg í eftirfarandi búðum: 12 Tónar, Skífan, Mál og Menning, Eymundsson, Hljómalind og á www.tonlist.is
Smellið á myndina til að fara á Myspace.

Bróðir Svartúlfs er afkvæmi fimm ólíkra hugmynda. Samstarfið hófst seinasta september og kom öllum meðlimunum strax á óvart hve samstilltir þeir voru, sérstaklega þegar litið var til forsögu hvers og eins þeirra í tónlist. Margur hefur reynt að koma bandinu fyrir innan ákveðins ramma eða stefnu, en ásættanleg niðurstaða í þeim málum hefur enn ekki fengist. Meðlimir kæra sig yfirleitt köllótta um þetta mál.
Hljómsveitina skipa:
Arnar Freyr Frostason - rapp/söngur
Andri Þorleifsson - trommur
Helgi Sæmundur Guðmundsson - synth/bakrödd
Jón Atli Magnússon- bassi
Sigfús Arnar Benediktsson- rafmagnsgítar
Smellið á myndina til að fara á Myspace.

Hljómsveitin Thingtak spilar kröftugt prógressíft ævintýrarokk. Hljómsveitin var stofnuð haustið 2005 og bar þá nafnið Alþingi. Eftir um 5 mánaða samstarf fengu liðsmenn heimboð í Alþingishúsið við Austurvöll þar sem löglærðir menn kváðust vera á móti nafngiftinni. Nafninu var þá breytt í Thingtak sem þýðir vopnatak. Platan Thingtak kom út 8. apríl 2006 og var hún gefin út af liðsmönnum hljómsveitarinnar. Hún var tekinn upp í studio Hljóðrita í Hafnarfiri á 17 tímum og inniheldur 12 lög. Þema plötunar er saga Íslands frá landnámi til siðaskipta.
Í hljómsveitinni eru:
Stefán - söngur og bassi
Hrafnkell - gítar
Sverrir - trommur
Kíkið á Myspace með því að klikka á myndina

Rokksveitin Vicky mun mæta aftur á Úlfaldann í ár. Sveitin sló svo sannarlega í gegn á síðasta Úlfalda, jafnt á tónleikunum sem og eftir þá, þar sem hamingjan var í fyrirrúmi. Síðan síðast hafa þau staðið í ströngu og má þá helst nefna útgáfu plötunnar Pull Hard. Vicky átti lagið Blizzard á toppi X-Dominos listanns á X-inu og komst það lag einnig á top 10 lista yfir lög ársins á útvarpssöðinni.
Í hljómsveitinni eru:
Ástrós - bassi
Eygló - söngur
Eyrún - gítar
Lotta - gítar
Orri - trommur
Kíkið á Myspace með því að klikka á myndina

Hljómsveitin Agent Fresco hefur farið mikinn frá upphafi. Þeir byrjuðu á að vinna Músíktilraunir og seinna unnu þeir undankeppni Global Battle of the Bands og kepptu úti fyrir Ísland hönd. Þeir gáfu út sína fyrstu plötu, "Lightbulb Universe", í vetur og hlutu lög þeirra "Eyes of a Cloud Catcher" og "Silhouette Palette" gríðarmikla spilun á öldum ljósvakans.
Í hljómsveitinni eru:
Arnór - söngur
Borgþór - bassi
Hrafnkell - gítar
Þórarinn - gítar og píanó
Kíkið á Myspace.

Múgsefjun á uppruna sinn að rekja til ársins 2004 þegar æskuvinirnir Hjalti og Björn fóru að spila saman. Með árunum bættust svo við sveitina harmonikkuleikari, trommari og bassaleikari og er sveitin í þeirri mynd nú í dag, og er ekki hvaða band sem er í dag sem státar af því að vera með harmonikkuleikara innanborðs. Hljómsveitin gaf svo út sína fyrstu plötu, "Skiptar Skoðanir", nú í vor og fékk hún t.a.m. 4 stjörnur af 5 í umfjöllun Fréttablaðsins.
Hljómsveitina skipa:
Hjalti - söngur
Sveinn - harmonikka, hljómborð og raddir
Brynjar - bassi
Eiríkur - trommur
Kíkið á Myspace með því að klikka á myndina
Sagan á bak við Úlfaldann:
Það var einn dag í okótber 2007 að Beta hringdi í Stefán og spurði hvort það væri ekki sniðugt að hafa tónleika í hlöðu föður hennar sem stóð ónotuð í Reykjahlíð við Mývatn. Stefán sagði strax já þar sem hann hafi lengi velt því fyrir sér að halda tónleika í sveitinni en alltaf vantað staðsetningu. Þar með var það ákveðið, tónleikar yrðu haldnir sumarið eftir en ekki ákveðið í hvaða formi það yrði.
Svo gerðist ekkert fyrr en upp úr áramótum þá fóru þau að ræða þetta af alvöru og í mars hittust þau á óformlegu órómantísku stefnumóti í hlöðunni. Þar voru línurnar lagðar að því sem koma skyldi en það var ljóst að mikið verk var fyrir höndum. Í hlöðunni voru yfir 350 m3 af tæplega 15 ára gömlu heyi sem þurfti að hreinsa út en stærstu verkin voru þó að gera stórt gat á hlöðuna og fella millivegg sem skipti henni í tvennt. Margar helgar fóru í þessa vinnu og nutum við mikillar og góðrar aðstoðar frá vinum og bændum og búaliði.
Meðfram þessu öllu saman þurfti að finna hljómsveitir til að spila, safna styrkjum, auglýsa tónleikana, útvega hljóðkerfi, leyfi, kamar og allt hvaðeina.
Allt gekk þetta upp að lokum og urðu tónleikarnir að veruleika 12. júlí 2008.
Úlfaldi úr Mýflugu 2008:
Það voru eintómar toppsveitir sem við fengum til að spila á fyrstu hátíðinni: Hraun, Jan Mayen, Vicky Pollard og Thingtak. Auk þess bættust strákarnir í Ælu við á síðustu stundu og spiluðu nokkur lög.
Tónleikarnir stóðu yfir frá 20:00-00:00 og á tímabili voru um 450 manns á svæðinu. Allt saman gekk vel og tónleikagestir létu vel af tónlistinni og stemningunni. Eftir að tónleikum lauk var haldið út í Rjóður þar sem gleðin var við völd fram undir morgun.


